|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurbjörg Árnadóttir
|
|
Mittwoch, 27 Januar 2010 |
|
Sjókonur fyrr og nú Þær fiska sem róa. Helga Katrín Tryggvadóttir segir frá rannsókn sem hún gerði fyrir Samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur verið og er ekki í dag mjög hátt en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordómum í garð kvenna hérlendis og skýringin á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli vera að finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordóma. Hafnir landsins. Fyrir skömmu kom út mjög áhugaverð bók um hafnir Íslands. Höfundur bókarinnar, Kristján Sveinsson, sagnfræðingur, sem einnig er einn höfunda bókarinnar Vitar á Íslandi, fræðir gesti um þennan merka menningararf. Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði, 101 Reykjavík Fimmtudaginn 4. mars klukkan 20:00 |
|
|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurbjörg Árnadóttir
|
|
Dienstag, 26 Januar 2010 |
Menningararfurinn til nýsköpunar og atvinnuuppbyggingar
Reykjanesviti – á Valahnjúk á Reykjanesi var 1. desember 1878 tekinn í notkun fyrsti viti landsins. Agnes Stefánsdóttir, fornleifafræðingur hjá Fornleifavernd ríkisins ræðir um vitann og fornminjar á Reykjanesi. Hvert er ástand fornminja á Reykjanesi og eru þær verndaðar og nýttar sem skyldi?
Ósvör – ein elsta verstöð Íslands og eitt helsta aðdráttarafl Bolungarvíkur. Finnbogi Bernódusson, safnvörður í Ósvör segir frá þessari gömlu verbúð sem m.a. geymir salthús, fiskihjalla, sexæring, dráttarspil, fiskireit og útihjalla sem gefa staðnum blæ liðinna tíma.
Hvernig getum við nýtt söguna og menningararfinn til atvinnuuppbyggingar og nýsköpunar? Eigum við ónýttan arf við strendur landsins sem auðvelt og fyrirhafnarlítið er nýta til nýsköpunar og atvinuuppbyggingar?
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði, 101 Reykjavík Fimmtudaginn 4. febrúar klukkan 20:00 |
|
|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurbjörg Árnadóttir
|
|
Mittwoch, 06 Januar 2010 |
|
Spor á ströndu Fimmtudagurinn 7. janúar 2010 klukkan 20:00 Að varðveita söguna við sjóinn. Anna Ólafsdóttir Björnsson, sagnfræðingur segir frá nokkrum þáttum sem hafa áhrif á varðveislu sögustaða og söguminja við ströndina í Sveitafélaginu Álftanesi. Selir, fuglar og sjálfbær þróun er það sem fyrst kemur í hugann þegar hugsað er til Selasetur Íslands á Hvammstanga. Á innan við fimm árum hefur Selasetrinu tekist að skapa sér sess í sem mjög svo áhugaverður viðkomustaður sem byggir á því að nýta auðlindir náttúru og samfélags með þeim hætti að komandi kynslóðior fái notið þeirra. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, framkvæmdastjóri segir frá starfsemi setursins. Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði 8 101 Reykjavík |
|
|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurbjörg Árnadóttir
|
|
Dienstag, 17 November 2009 |
|
Fimmtudagur 3. desember 2009. Almættið og Íslands Hrafnistumenn Heilsufar sjómanna. Eru hetjur hafsins óbugandi og hraustari en aðrir? Eða hefur vetrarmyrkur, einsemd og einhæft starf áhrif á þá eins og aðra? Í erindi sínu gerir Sonja Sif Jóhannesdóttir grein fyrir rannsókn sinni á heilsufari og líkamsástandi sjómanna fyrir og eftir 6 mánaða íhlutunartímabil. Íhlutunin fólst í því að auka hreyfingu og bæta mataræði sjómannanna, bæði á sjó og í landi. Sonja Sif er meistari í íþrótta- og heilsufræðum frá læknadeild Háskóla Íslands og íþróttaskor K H Í. Sjóarinn og almættið. Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur og kennar segir frá sjómönnum sem voru í burtu frá fjölskyldum og ástvinum á jólum vegna sjósóknar, hvernig aðbúnaður sjómanna var um borð á jólum og hvernig hann hefur breyst. Einnig segir hún frá siðum sem sjómenn stunduðu til að treysta velvild æðri máttarvalda við sjósóknina. Að lokum segir hún sögu af jólum tengdri Landhelgisgæslunni þar sem ferð til hafnar að halda jólin á aðfangadag með fjölskyldum breyttist í björgunarleiðangur vegna vísbendingar að handan sem varð til þess að tveimur skipum var bjargað úr sjávarháska. Staður og stund: Sjóminjasafn Reykjavíkur – Víkinni, Grandagarði 8, Reykjavík. Hefst kl. 20.00 |
|
|
Spegill fortíðar - silfur framtíðar |
|
|
|
|
Skrifað af Sigurbjörg Árnadóttir
|
|
Freitag, 30 Oktober 2009 |
|
Íslenska vitafélagið - félag um íslenska strandmenningu mun í samvinnu við Sjóminjasafn Reykjavíkur – Víkina standa fyrir fræðslukvöldum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar í vetur. Fyrsta fræðslukvöld vetrarins verður fimmtudagskvöldið 5. Nóvember og hefst klukkan 20:00
Fyrstu fyrirlestrarnir bera yfirskriftina; Á sjó eða brennu ?
Bátar og brennur. Þegar góða veislu gjöra skal, ár er kvatt og nýju heilsað, hefur landinn haft það til siðs síðustu áratugina að brenna trébáta. Í erindi sínu fjallar Agnar Jónsson, skipasmiður um trébáta. Hvað varð um þennan hluta menningararfsins? Hvað eigum við eftir af honum og hver er stefna stjórnvalda í þessum efnum ?
Stolt siglir fleyið mitt. Eikarbáturinn Húni II er stærsta eikarskip á Íslandi sem enn flýtur. Menningararfleið sem er vernduð með því að nýta hana. Atvinnuskapandi gleðigjafi sem auðgar mannlíf á Akureyri og í nágrenni allan ársins hring. Þorsteinn Pétursson, segir frá smíði og notkun Húna II. í gegnum árin.
Staður og stund: Sjóminjasafnið Víkin Grandagarði, Reykjavík Dagskrá vetrarins er að finna á Spegill fortíðar |
|
|
|